Chateau Saint Cosme er vínhús í Rhone-héraðinu í Frakklandi með langa sögu. Höfuðvígi Saint Cosme er í þorpinu Gigondas, nágrannaþorpi Chateauneuf-de-Pape, og Barruol-fjölskyldan hefur stundað þar víngerð frá fimmtándu öld. Víngerðarmaðurinn Louis Barruol er oft nefndur sem ein af upprennandi stórstjörnum héraðsins og hann hefur hleypt nýju lífi í þetta gamalgróna fjölskyldufyrirtæki.
Saint Cosme Gigondas 2007 er einfaldlega magnað vín. Það er Grenache sem er ríkjandi þrúga en Syrah og Mourvédre koma þarna einnig við sögu. Vínið er dökkt og angan þess þurr, krydduð og míneralísk. Þarna er anís, reykur og járn ásamt bláberjum og krækiberjum. Í munni föst og kraftmikil tannín, vínið er voldugt og margþætt í munni en samt svo svakalega fínlegt. Virkilega flott vín.
Fyrir rétti á borð við hnetuhjúpað hreindýr.
5.038 krónur.