Verð á tugum vína lækkaði í vínbúðunum nú um síðustu mánaðamót. Má meðal annars nefna að þriggja lítra kassi af Drostdy Hof Cape Red lækkaði úr 5.399 krónur í 5.299 krónur, Peter Lehmann Shiraz og Peter Lehmann Cabernet Sauvignon lækkuðu úr 2.599 í 2.498 krónur, Peter Lehmann Mentor lækkar úr 5.999 í 5.799 krónur, og Guigal Cotes du Rhone lækkar úr 2.498 krónur í 2.399 krónur.
Af ítölskum vínum sem lækka má nefna Leonardo Chianti sem fer úr 1.999 í 1.899 krónur og Marchese Antinori Chianti Classico Riserva fer úr 3.699 í 3.599 krónur.
Þá lækka spænsku rauðvínin Coto de Imaz Reserva úr 2.599 í í 2.549 krónur, Baron de Ley Reserva fer úr 2.698 krónur í 2.549 krónur og Pata Negra Gran Reserva úr 1.999 krónur í 1.899 krónur.
Af hvítum vínum sem lækka má nefna Guntrum Riesling í þriggja lítra kassa, sem fer úr 4.198 í 4.099 krónur, Drostdy Hof Steen í þriggja lítra kassa sem fer úr 4.998 í 4.899 krónur og Peter Lehmann Chardonnay sem fer úr 2.198 í 2.098 krónur.