Það eru alltaf margir sem bíða spenntir eftir því að sjá hvaða vín verða fyrir valinu sem vín ársins hjá bandaríska tímaritinu Wine Spectator. Að þessu sinni var það vínið Saxum frá Paso Robles í Kaliforníu sem trónir í efsta sæti en síðan koma vínin Two Hands Shiraz frá Barossa í Ástralíu, Peter Michael Ma Belle Fille Chardonnay frá Sonoma í Kaliforníu, Revana Cabernet Sauvignon frá St. Helena í Kaliforníu og Altamura Cabernet Sauvignon frá Kaliforníu.
Raunar er það einkennandi fyrir listann að þessu sinni að efstu sætin skipa að mestu leyti lítt þekkt vín sem einungis 2-3000 kassar eru framleiddir af árlega. Af Saxum eru raunar einungis framleiddir 950 kassar.
Eitt og eitt vín þó sem Íslendingar sumir kannast við. Í áttunda sæti er ofur-Toskana-vínið Flaccianello frá Fontodi, sem m.a. er fáanlegt á La Primavera. Þegar neðar dregur fjölgar kunnuglegum vínum. Bodegas LAN Crianza frá Rioja er í 44. sæti, Bodegas Beronia Reserva í 52. sæti, Concha y Toro Marcues de Casa Concha Cabernet í 56. sæti, Silex frá Didier Dagueneau í Sancerre í 60. sæti, Trimbach Riesling frá Alsace í 62. sæti, D’Arenberg Stump Jump í 63. sæti, Clancy’s frá Peter Lehmann í 77. sæti, Norton Malbec Reserva í 89. sæti og Kanonkop Pinotage í 100. sæti.