Mayor de Castilla Rueda 2009

Rueda er svæði á Spáni sem hefur verið að slá rækilega í gegn. Þetta er hvítvínssvæði og þrúga svæðisins heitir Verdejo. Rueda vínin eiga sér þúsund ára sögu en það var ekki fyrr en þekktir spænskir vínramleiðendur áttuðu sig á því að þarna væru kjöraðstæður fyrir framleiðslu á ódýrum og góðum vínum að það fór á flug.

Mayor de Castilla Rueda 2009 er eina Rueda-vínið sem nú er fáanlegt í vínbúðunum. Það er um margt dæmigert fyrir svæðið, mjög ferskt og aðlaðandi með sætum sítrónuberki og sítrónu, keimur af steinefnum með þægilegri sýru í munni.

1.499 krónur. Frábær kaup á því verði.

 

Deila.