Eyrun á Finlandia Cup

Eyrun Huld Gísladóttir barþjónn á veitingahúsinu Silfri keppti á dögunum í úrslitakeppni Finlandia Cup í Lapplandi. Eyrun var hlutskörpust þegar íslenska keppnin var haldin í fyrra en þar tóku 43 barþjónar þátt. Í Finnlandi kepptu alls 31 barþjónn sem hafði unnið undankeppni í sínu heimalandi.

Eyrún lenti í nítjánda sæti með drykk sinn Danny Boy en uppskriftina á honum má sjá hér. Það var Rúmeninn Eduard Gabriel Glisca sem sigraði keppnina.

Myndband úr keppninni má svo skoða hér.

Deila.