Ari Trausti Guðmundsson, jarðfræðingur, rithöfundur og fjölmiðlamaður, hefur gert ýmislegt í gegnum tíðina og má nefna gífurlega vinsæla sjónvarpsþætti hans um vísindi og íslenska náttúru á sínum tíma. Hann hefur nú ásamt dóttur sinni Helgu Sigríði, arikitekt í París, tekið saman bók um veitingahús á Íslandi. Hún heitir Enjoy og er gefin út á ensku.
Í bókinni, sem er skreytt fjölmörgum fallegum ljósmyndum, er að finna úttekt á 32 íslenskum veitingastöðum. Ekki er um veitingahúsagagnrýni að ræða heldur er sagt frá sögu staða, einkennum þeirra, matreiðslumönnum og áherslum í matargerð.
Útgefandi er Salka Forlag.