Francois d’Allaines er lítill framleiðandi sem stofnaði vínhús sitt árið 1996 í þorpinu Demigny í Búrgund. Hann framleiðir aðallega vín af svæðunum Cote de Beaune og Cote Chalonnaise og hafa vín hans verið fáanleg hér í einhverjum mæli síðustu árin.
Macon er eitt af þorpunum syðst á víngerðarsvæði Búrgunds og hvítvínin að sjálfsögðu hrein Chardonnay. Þetta er þurr Búrgundari, þurrkaðir ávextir, sítrus, ferskjur og fíkjur, smá vottur af eik sem kemur meira fram sem smjör en vanilla, hún ræður ekki ferðinni hér. Þægileg fersk sýra og ágætis lengd. Með bleikju, laxi og skelfiski.
2.695 krónur.