Þetta Reserva-vín frá Morandé kemur frá Casablanca-dalnum rétt fyrir norðan Santiago, höfuðborg Chile. Þar eru frábærar aðstæður til hvítvínsframleiðslu. Á daginn er heitt en á nóttunni flæðir kalt sjávarloft af Kyrrahafinu inn yfir dalinn.
Þetta hvítvín hefur þurrt og þægilegt yfirbragð, perur og grænar jurtir í nefi, þétt og ágætlega langt. Elegant í uppbyggingu og þægilega „hófstillt“ af Nýja-heimsvíni að vera.
1.990 krónur. Góð kaup.