Þetta Cotes-Du-Rhone Villages vín frá Louis Bernard er dæmigert fyrir héraðið, þrúgan Grenache er ríkjandi og víngerðarmönnum Louis Bernard hefur tekist ágætlega upp í erfiðu ári, sem kom á milli tveggja stórkostlegra árganga, 2007 og 2009.
Vínið er dökkrautt á lit, kryddað og piprað í nefi, þar er líka rabarbari og svört ber. Þokkaleg lengd, ekkert sérstaklega flókið vín en hefur ágæta matvæna sýru.
2.295 krónur