Coto de Imaz Gran Reserva 2001

Gran Reserva-vínin frá Rioja eru þau sem hafa verið geymd lengst, fyrst á eikartunnum og síðan flösku áður en að þau eru loks sett á markað. Þetta höfuga vín frá El Coto hefur þannig verið geymt á amerískum eikartunnum í tvö ár fyrir átöppun og síðan látið liggja á flösku í allmörg ár í viðbót áður en það kemur nú í sölu.

Þetta er klassískur og mikill Rioja, enn dökkt á lit. Djúpur kryddaður, allt að því þurrkaður ávöxtur í nefi í bland við kókos og kaffi úr eikinni. Vínið er lagskipt og tekur sinn tíma að opna sig og sýna alla sína breidd. Það er þykkt, feitt, eikað og tannískt. Enn er mjög góður sýrustrúktur til staðar, vínið virkar ungt þótt það sé áratugargamalt.

Með góðri nauta- eða lambasteik.

3.499 krónur. Góð kaup.

 

Deila.