Kampavínshúsið Ayala er ekki stórt en hefur löngum verið talið með þeim betri í bænum Ay í Champagne. Raunar það gott að nágranninn Bollinger ákvað fyrir nokkrum árum að kaupa húsið. Það hefur óneitanlega haft áhrif á stíl vínanna, sem eru orðinn þroskaðri og tignarlegri.
Rósakampavínið Rosé Majeur Brut er klassískt, blanda af fyrst og fremst Pinot Noir og Chardonnay. Þurrt og ferskt í nefi með jarðarberjum og rifsberjum, skarpt og ágengt. Mjög þurrt, fágað í munni með góðu sýrubiti og fínlegum bólum, góð lengd og ending.
Sem fordrykkur með snittum, t.d. bleikjuhrognum á blinis eða sushi.
7,290 krónur.