Oxford Landing Estates er vínlína frá ástralska vínhúsinu Yalumba. Þetta er svokölluð GSM-blanda en sú skammstöfun táknar þrúgurnar Grenache, Syrah og Mourvédre.
Þetta er bara nokkuð sprækur Ástrali, sultuð svört ber, súkkulaði og kóngabrjóstykur í nefi, vottur af vindlakasa. Þykkt og feitt, sætt og áfengt (14,5%). Ágætlega kjötmikið og safaríkt.
2.190 krónur. Góð kaup.