Það þekkja flestir þrúguna Shiraz eða Syrah en færri kannast líklega við Bobal en hún er engu að síður þriðja mest ræktaða þrúga Spánar.
Castillo de Liria er vínhús í Valencia, þetta er mjúkt og aðgengilegt rauðvín, þægilegur dökkur, svolítið sætur ávöxtur, kirsuber og plómur, vottur af kaffi.
1.549 krónur. Góð kaup.