La Chablisienne Chablis La Sereine 2007

Vínsamlagið Chablisienne er stærsti framleiðandi Chablis-vína. Samlagið var sett á laggirnar árið 1923 og í dag eiga um 300 vínræktendur aðild að því. Ræður samlagið yfir um 25% af heildarræktarsvæði Chablis og framleiðir allt frá Petit Chablis og upp í Grand Cru.

La Sereine 2007 er klassískur Chablis, skörp sítursangan, sætur sítrónusafi, limesafi og greip, míneralískt. Þétt, ferskt, farið sýna byrjandi þroska með mildum hnetukeim. Vín með humar og góðum sjávarréttum.

2.799 krónur. Góð kaup.

 

Deila.