Trimbach-fjölskyldan hefur komið við sögu vínræktar í Alsace í á fimmtu öld. Það var hins vegar „ekki fyrr“ en á nítjándju öld sem að vínin frá Trimbach slógu rækilega í gegn þegar Fréderic-Emil Trimbach fór með nokkur sýnishorn á heimssýninguna í Brussel árið 1898. Alla tíð síðan hefur þetta fjölskyldufyrirtæki í bænum Ribeauville verið í röðum fremstu framleiðenda héraðsins.
Einkenni Trimbach-vínanna er þroskaður og mikill ávöxtur, ber sem eru tínd seint og ná fullri dýpt viðkomandi þrúgu en þó aldrei framleitt með neinum votti af sætu. Það á ágætlega við í þessu Riesling-víni frá Trimbach en ávöxturinn er þó ferskari en oft hjá Trimbach. Græn ber, kervill, lime og salvía. Þurrt og langt, þétt sýra, kallar á mat.
2.599 krónur. Mjög góð kaup.