Mo Monastrell frá vínhúsinu Bodegas Sierra Salinas í Alicante hefur um nokkurt skeið verið með allra bestu kaupunum í sínum verðflokki. Það besta er hins vegar að vínið hefur batnað töluvert með hverju árgangi undanfarið, ekki síst vegna þess að Sierra Salinas dró í kjölfar alþjóðlegu fjármálakreppunnar úr framleiðslu á dýrustu vínunum en jók á móti framleiðsluna á Mo – með þrúgunum sem ella hefðu farið í dýru vínin.
Mo 2009 er dökkt og mikið um sig, enn mjög ungt og töluvert tannískt. Það þarf tíma, það hefur gott af geymslu en annars má mæla með röskri umhellingu til að það njóti sín til fulls. Ávöxturinn er dökkur, krækiber og sólber, töluvert kryddað með dökku, ristuðu kaffi.
1.950 krónur. Frábær kaup.