Marques de Riscal Reserva 2006

Marques de Riscal er eitt af þeim Rioja-vinum sem eiga sér hvað lengsta sögu á íslenska markaðnum enda er um að ræða eitt helsta vínhús svæðisins. Vínhús á sér langa sögu og er eitt af þeim vínhúsum svæðisins sem blómstruðu í kjölfar þess að tækni og víngerðarmenn streymdu til Rioja frá Bordeaux á síðari hluta nítjándu aldar.

Reserva 2006 er klassískur Rioja, þroskaður ávöxtur og mikil eik, í nefi leður, kandís, vanilla og reykur í bland við mjög þroskaðan rauðan ávöxtinn. Vín fyrir grillaðar nautasteikur.

3.399 krónur.

Deila.