Búrgundarþrúgan Pinot Noir þrífst ekki vel utan heimahaganna nema í undantekningartilvikum. Á Nýja-Sjálandi hafa hins vegar reynst vera kjöraðstæður fyrir þessa mögnuðu þrúgu.
Þetta rauðvín frá Villa Maria, sem kemur af ekrum í dölunum Wairau og Aware í Marlborough á Suður-Eyju. Það er farið að sýna smá þroska í lit, í nefi sultuð ber og rabarbari, piparkökur og dökkt súkkulað nokkuð áberandi viður. Þykkt með sætum og negulkrydduðum ávexti, mjúkt, nokkuð langt.
4.379 krónur.