Bordeauxdagar á Holtinu

Bordeaux-dagar verða á Gallery restaurant á Hótel Holti dagana 6. – 9. september næstkomandi. Slíkir dagar hafa verið haldnir nær árlega í vel á annan áratug og hafa stjórnendur fjölmargra af þekktustu vínhúsa Bordeaux komið hingað. Má þar nefna Yquem, Cantenac-Brown, Branaire Ducru, Cheval Blanc og Troplong Mondot. Að þessu vinni verður áherslan á vínhúsin Durfort-Vivens og Haut-Bages-Liberal.

Í tilefni Bordeaux-daga kemur Jerome Heranval, víngerðarmaður og stjórnandi vínhúsanna, hingað til lands ásamt Edouard Andre frá Compagnie Médocaine.

Haldin verður Masterclass-smökkun og kvöldverður fimmtudaginn 6. September þar sem farið verður yfir nokkra árganga frá hvoru vínhúsinu ásamt viðeigandi matseðli. Taka ber fram að mjög fá sæti eru í boði á Masterclass-smökkunina.

Bæði vínhúsin voru flokkuð sem Grand Cru Classé í hinni frægu Bordeaux-flokkun frá 1855. Durfort-Vivens er staðsett í Margaux og flokkast sem 2éme Cru Classé. Saga hússins hefur verið rakin allt aftur til elleftu aldar en það var á átjándu öld sem að það öðlaðist alþjóðlega viðurkenningu, ekki síst fyrir tilstilli Thomas Jefferson. Hann var mikill vínunanndi og um tíma sendiherra í Frakklandi áður en að hann varð Bandaríkjaforseti. Hann ferðaðist um Frakkland og ritaði dagbækur þar sem að hann greindi frá vínævintýrum sínum en í þeim flokkaði hann vínin frá Durfort Vivens að gæðum samhliða Lafite og Latour. Durfort-Vivens er vel staðsett en vínekrur þess eru samhliða ekrum Chateau Margaux. Húsið er í eigu Lurton-fjölskyldunnar, sem er afskaplega stór og áhrifamikil á þessu svæði en það var Lucien Lurton (bróðir André) sem að keypti eignina árið 1961,

Haut-Bages-Liberal er staðsett í Pauillac og flokkast sem 5éme Cru Classé. Bages er fjölskylda sem var áhrifamikil á þessu svæði og er bunga (á frönsku er þetta nefnt plateau en mannifinnst bungan kannski ekki standa undir því að vera háslétta) þar sem að jarðvegurinn rís upp á Pauillac svæðinu nefnd Bages. All nokkur vínhús kenna sig við Bages, s.s. Lynch Bages,Haut-Bages-Averous og Croizet_Bages. Efst á bungunni eru ekrur Haut-Bages-Liberal eins og nafnið (haut) gefur til kynna. Raunar eru ekrurnar sem tilheyra vínhúsinu þrjár. Sú efsta er samhliða ekrum Grand Puy Lacoste en hinar tvær liggja samhlða annars vegar Latour og hins vegar Pichon Lalande. Þetta er yndislegt vínhús, sem kemst eins nálægt því og Pauillac-vín geta verið að vera „hagstæð kaup“.

Sérstakur matseðill verður í gangi í tilefni Bordeaux-daga frá föstudegi til sunnudags.

Sjö rétta máltíð er í boði og með hverjum rétti er smakkað á sérvöldu Bordeaux-víni..

Fyrir kvöldverð verður öllum gestum boðið í vínsmökkun í vínkjallara Hótel Holts en hann er einn sá stærsti sinnar tegundar hér á landi.

Deila.