Það er ekki óalgengt að erlendir „gestakokkar“ staldri við í eldhúsum íslenskra veitingahúsa. Það er hins vegar ekki eins algengt að „gestavínþjónir“ komi til landsins en einn slíkur verður þó á Sushi Samba nú um helgina, föstudag og laugardag. Vínþjónninn Martin Duran er frá Chile og starfar m.a. fyrir stærsta vínhús landsins, Concha y Toro. Hann hefur tekið saman sérstakan vínseðil fyrir kvöldin og á honum er m.a. að finna eftirlætisvín hans, ofurvín á borð við Don Melchor og Almaviva en hið síðarnefnda er samstarfsverkefni Concha y Toro og Mouton-Rothschild í Bordeaux í Frakklandi.
Sommelier frá Chile á Sushi Samba
Deila.