Tilbrigði Danna við klassík og margarítur

Við fengum Daníel Óla Þorláksson til að aðstoða okkur við nýjustu syrpuna af spennandi kokteilum. Það er óhætt að segja að Daníel hafi ekki þurft að sækja kokteiláhugann langt en móðir hans er Anna María Pétursdóttir, einn reyndasti barþjónn landsins.

Daníel Óli starfar nú á Forréttabarnum samhliðla námi en hann hefur komið víða við í gegnum tíðina. Þar til fyrir skömmu starfaði hann á skemmtiferðaskipinu Seabour sem sigldi um öll heimsins höf en hann hefur einnig unnið á stöðum á borð við Lækjarbrekku, Blá lóninu, Austur, Vegamótum og Rex.

Á Forréttabarnum er ætlunin að leggja aukna áherslu á kokteila á næstu mánuðum en í syrpunni sem að Daníel Óli setti saman fyrir okkur leikur hann sér annars vegar að því að setja nýtt tvist á klassíska drykki og hins vegar að því að gera hið sama með Margarítu.

Það er einmitt vel við hæfi því að við verðum líka í mexíkósku stuði í uppskriftunum næstu dagana. Það er hægt að teygja og toga Margaríturnar á ýmsa vegu – í Golden Margarita er appelsínulíkjör bætt saman við og nafnið Súkkulaði Margaritaskýrir sig eiginlega sjálft. Franskur 77 er tilbrigði við franskan líkjör frá því í fyrra stríði og Bourb Berry er flottur bourbon sour. Sjötti og síðasti drykkur heitir Applecello en það má segja að hann sé Limonecello afbrigði af Appletini.

Deila.