Þetta er afbrigði af hinni klassísku indversku raítu þar sem að við notum kóríander í staðinn fyrir myntu.
- 3 dl grísk jógúrt
- 1 lúka fínt saxaður kóríander
- 1/2 gúrka, fræhreinsuð og rifin á grófu rifjárni
- safi úr 1/2 lime
- Maldon salt
Blandið saman og leyfið að standa í að minnsta kosti klukkustund í ísskáp áður en borið er fram.