Það sem gerir Pinot Gris frá Alsace svo heillandi er að hann getur tekið á sig mjög margar myndir. Verið ferskur og léttur eða þungur og sætur og allt þar á milli.
Þetta Pinot Gris frá Willm er í ferskari kantinum, þurrt og sítrusmikið í nefi, melóna, ástaraldin, svolítið míneralískt, kryddað, þægilegt og ljúft.
2.699 krónur.