Finca Resalso er nafnið á fyrstu vínekru Emilio Moro í Ribera del Duero á Spáni og er nafn hennar nú notað á þetta vín sem er gert úr ávexti af yngri vínvið af ekrum Moros. Þetta er afskaplega kröftugt og eikað vín, mikil karamella, reykur og leður í nefi í bland við svartan, dökkan ávöxt. Tannískt, lagskipt með flottum sólberjaberjaávexti. Svakalega flott vín fyrir verðið, borgar sig tvímælalaust að opna með fyrirvara og helst umhella. Með rauðu kjöti og ostum.
2.498 krónur. Mjög góð kaup.