Gerard Bertrand Banyuls 2008

Þótt spænsku sérríin og portúgölsku púrtvínin séu þau styrktu vín sem að flestir þekkja þá eru einnig til afburða styrkt vín eða vin doux frá Frakklandi. Best eru þau frá Banyuls sem er víngerðarhérað skammt frá Perpignan við Miðjarðarhafsströndina rétt við spænsku landamærin. Þau eru nokkuð lægri í áfengi en púrtvínin eða 16%.

Þetta Banyuls er úr smiðju Gerard Bertrand. Sæt, heit angan, þurrkuð ber, sveskjur, rúsínur, fíkjur og krydd, negull og mildur viðarkeimur í bland við sæta karamellu. Flauelsmjúkt og feitt, með löngu, fersku bragði, góð sýru gefur því líf og léttleika. Með eftirréttum og ostum.

3.599 krónur.

Deila.