Nýsjálenska vínhúsið Villa Maria fagnar um þessar mundir 50 ára starfsafmæli sínu. Af þessu tilefni verður haldinn sérstakur kvöldverður á Forréttabarnum næstkomandi mánudag, 8. apríl.
Þar verður reiddur fram sérstakur sex rétta matseðill að hætti Forréttabarsins með sérvöldum Villa Maria vínum með. Fulltrúi frá Villa Maria, Bernard Rudel, verður á staðnum o gmun leiða gesti í gegnum kvöldið.
Verð er kr. 9.900 krónur á mann og borðapantanir í síma 517 1800.
Nánar er hægt að lesa um sögu vínhússins með því að smella hér.