Kjötbollur með kúrbít og pasta

Kjötbollurnar eru gerðar með grísku jógúrti og Sambal Oelek sem er kryddmauk sem er mikið notað í suðaustur-asískri matargerð. Með þessu er síðan sósa með kúrbít, sítrónu og osti. Ágætt er að nota pasta á borð við penne.

  • 600 g nautahakk
  • 2 egg
  • 3 msk grísk jógúrt
  • 2 msk Sambal Oelek
  • salt og pipar

Blandið saman og mótið litlar kjötbollur. Hitið smjör á pönnu og steikið bollurnar. Takið af pönnunni og geymið í fati í ofni við 150 gráður. Þannig haldast þær heitar og eldast í gegn.

  • 1 vænn laukur, saxaður
  • 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 2 meðalstórir kúrbítar, skornir í litla bita
  • 1 búnt flatlaufa steinselja, fínsaxað
  • rifinn börkur af einni sítrónu og sítrónusafinn
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 1 poki Gratínostur

Byrjið á því að mýkja lauk og hvítlauk í smjöri á sömu pönnu og kjötbollurnar voru steiktar á. Bætið kúrbítnum út á og steikið 4-5 mínútur. Bætið nú sítrónuberkinum, sítrónusafanum og helmingnum af steinseljunni saman við. (Ekki sakar ef þið eigið smá skvettu af hvítvíni til að setja á líka). Hrærið saman og látið malla í nokkrar mínútur. Setjið ostinn og sýrða rjómann út á og leyfði sósunni að þykkna aðeins.  Bragðið til með salti og pipar.

Blandið soðnu pastanu saman við ásamt afganginum af steinseljunni. Sefjið kjötbollurnar ofan á og berið fram. Það er ágætt að bera fram með nýrifnum parmesan.

Með þessu ítalskt rauðvín á borð við Col di Sasso frá Banfi.

Deila.