Drouhin er gamalgróin vínræktarfjölskylda í Búrgund en Laforet er í alla staði nútímalegt Pinot Noir-vín frá því héraði. Það eru orðin nokkur ár síðan að þrúgan fór að birtast á flöskumiðanum (Frakkar merktu vín sín lengi vel einungis með landfræðilegum uppruna en ekki þrúgum) og nú er vínið meira að segja komið með skrúfaðan tappa til að tryggja ferskleika vínsins.
Laforet einkennist af björtum, ferskum og rauðum berjaávexti í nefi, rifs, jarðarberjum og kirsuberjum í bland, ávöxturinn ungur, sætur og örlítið kryddaður, lyng og kryddjurtir, vanillustöng og kanill. Þetta er vín sem er dæmigert fyrir svæðið, nýlega smakkað við hliðina á mun „stærra“ Búrgundarvíni og stóð sig bara merkilega vel í þeim samanburði. 2010 er líka hrikalega flottur Búrgundarárgangur. Með önd og berja- eða appelsínusósu eða nautalund.
2.597 krónur. Góð kaup.