Chateau Gomin er eitt af vínhúsum André Lurton í Bordeaux en Lurton-fjölskyldan er með allra áhrifamestu fjölskyldum þessa stórkostlega franska vínhéraðs.
Goumin er eitt af „einföldu“ Bordeaux-vínunum en Lurton-fjölskyldan vandar alltaf til verka og þegar við bætist einhver stórkostlegasti árgangur síðari ára, árgangurinn 2009, er útkoman bara ansi flott.
Það er greinilega miklu meiri Merlot í þessu víni en Cabernet, bjartur, flottur og ferskur ávöxtur, rauð ber, rifs, hindber og einnig dökkari sólber, Ávöxturinn heldur áfram ferskur og flottur í munni, smá tannínbit sem gefur víninu meira umfang og strúktúr, örlítil möndlukaramella. Vel gert, nútímalegt Bordeaux-vín í einfaldari kantinum.
1.795 krónur. Frábært verð fyrir þetta vín. Það er ekta Bordeaux-fílingur í víninu og ótrúlega gott miðað við verð. Goumin hefur verið að rokka á milli 3 og 3 1/2 stjörnu hjá okkur á milli árganga en gæðin á 2009 miðað við verð eru þannig að við gefum því fjórar fyrir það sem Frakkar myndu kalla „rapport qualite prix“ eða samspil verðs og gæða.