Bordeaux-veisla í Viðey

Það er komin áralöng hefð á Bordeaux-dagana á Hótel Holti þar sem fulltrúar þekktustu vínhúsa Bordeaux í Frakklandi hafa komið hingað til lands haldið fyrirlestur og smökkun auk þess sem gestum gefist kostur á að snæða dýrindis máltíð með vínum viðkomandi vínhúss.

Þessari merku hefð, sem Hótel Holt stendur að í samvinnu við Globus og Compagnie Médocaine, er haldið áfram og í ár er það Corinne Michot sem verður fulltrúi Bordeaux en hún starfar fyrir Chateau Pichon-Longueville Baron í Pauillac og fleiri þekkt vínhús.

Corinne
Michot ólst upp í Loire-dalnum og heillaðist snemma af töfrum vínsins. Hún nam vínþjónafræði í Tours og vakti snemma athygli fyrir hæfni sína. Þegar hún var einungis nítján ára gömul bauð Gérard Basset, sem hefur verið kjörinn besti vínþjónn heims, henni vinnu og hún starfaði undir hans leiðsögn í Bretlandi um árabil. Árið 2004 flutti hún til London og gerðist yfirvínþjónn á veitingastað Angelu Harnett á Connaught-hótelinu, sem rekinn var af Gordon Ramsay, en það var einhver eftirsóknarverðasta staða vínþjóns í heiminum á þeim tíma. Eftir að hafa tekið sér ársleyfi til að ferðast um Asíu árið 2007 flutti hún heim til Frakklands og bauð Christian Seely, forstjóri AXA Millesimes, sem á nokkur af helstu vínhúsum Bordeaux og víðar henni starf við að kynna vín AXA-húsanna víða um heim.

Hún mun í smökkunum á Bordeaux-dögu leggja áherslu á vín frá þremur Chateau-um: Pichon-Longueville og Pibran frá Pauillac og Suduiraut í Sauternes.

Chateau Pichon Baron Longuville er einhver glæsilegasta höll eða kastali Bordeaux-héraðsins og þaðan koma sömuleiðis einhver bestu vín undirsvæðisins Pauillac.Kastalinn stendur syðst í Pauillac, nálægt bæjarmörkunum að Saint-Julien og vekur athygli allra sem aka fram hjá honum. Þessi ævintýrahöll er ekki bara einn fallegasti bygging svæðisins heldur sömuleiðis eitt allra besta víngerðarhús Bordeaux og hefur með 2010 árganginum skipað sér í röð allra fremstu vína svæðisins. Vín þess eru bæði tignaleg og risavaxin og skila öllu því besta eftir góða kjallarageymslu. Seinna vín hússins eins konar litli bróðir chateau-vínsins er unnið úr nefnist Tourelles de Longueville og þykir hvað bestu kaupin í góðu Bordeaux í vínbúðinni og Fríhöfninni

Chateau Pibran er virt vínhús í Pauillac og ekrur þess liggja að ekrum mjög þekktra vínhúsa á borð við Pontet Canet, Mouton Rothschild og Lynch Bages. Vín hússins eru stór og öflug með mikla lengd og þokka. Seinna vín Pibran heitir Tour de Pibran og fæst sömuleiðis hér á landi.

Chateau Suduiraut í Sauternes er eitt besta víngerðarhús svæðisins en sætvín Sauternes eru eftirsóttustu sætvín veraldar. Einstakt loftslag myndar kjöraðstæður sem geri vínræktendum kleift að láta þrúgurnar, Semillon og Sauvignon Blanc, hanga á vínviðnum langt fram á haust og þar sem þær „þorna“ á runnunum með náttúrulegum hætti. Dísætur safinn myndar síðan hin einstöku Sauternes-vín. Þau taka síðan út þroska og verða margslungin af langri geymslu á frönskum eikartunnum. Nú á seinni árum hafa sum frægustu vínhús Sauternes komið fram með mögnuð þurr vín unnin úr sömu þrúgum, sem tíndar eru fyrr á haustin, og er vínið S du Suduiraut eitt þeirra.

En til að gera langa sögu stutta þá verður hápunktur Bordeaux-dagana 7. júní næstkomandi í Viðey. Mat- og vínseðill kvöldsins lítur svona út:

Veuve Clicqout Champagne
Canapé

S de Suduiraut 2011
Humar, blálanga og eldsteikt epli

Ch. Pibran 2008
Mjólkurkálfur og steikt andarlifur á ofnbakaðri sellerírót

Ch. Tourelles de Longueville 2005
Lambalundir #Wellington# og brasseruð lambasíða

Ch. Pichon Longueville Baron 2002
Ch. Pichon Longueville Baron1996
Steiktar Nautalundir á ´la minute og ferskar sumartrufflur

Ch. Suduiraut 2006
Íslenskir eðal ostar, klettasalat og grænmetissulta

Disznókó Aszu 5 p 2005
Hvítt súkkulaði Opalys 33% frá Valrhona, kardimommur og sítrus ávextir

Verðið fyrir þetta allt saman er 25.900 krónur og er þá ferjan líka innifalin.

Einungis í Viðeyjarstofu þann 7. júní Fá sæti í boði.
Borðabókanir á videyjarstofa@holt.is og í síma 533 5055.

Deila.