Þetta er kröftug marinering með sem hentar ekki síst vel fyrir svínakjöt sem á að grilla, t.d. grísahnakka eða kótilettur. Það má líka nota hana með kjúklingabitum. Látið kjötið liggja í marineringunni í 1-2 klukkustundir. Grillið og penslið áfram með marineringunni. Það er síðan tilvalið að hafa gott kartöflusalat með.
- 1 laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 1,5 dl vatn
- 140 g tómatpúrra
- 2 msk eplaedik eða síderedik
- 2 msk Worchestershire-sósa
- 1 dl hlynsíróp
- 1/2 dl hunang
- 1 tsk chiliflögur
- 1/2 tsk Caeynnepipar
Setjið lauk, hvítlauk og vatn í matvinnsluvél og maukið vel. Setjið í pott ásamt öðru hráefni. Látið suðuna koma upp og látið svo malla á mjög vægum hita í 15-20 mínútur. Takið af hitanum, kælið og geymið. Það má hæglega geyma marineringuna í ísskáp í 1-2 vikur.