Los Condes eru vín frá vínhúsinu Roqueta í norðurhluta Katalóníu á Spáni. Þetta eru ódýr vín en athyglisverð fyrir virkilega hagstætt hlutfall verðs og gæða.
Hér er á ferðinni rauðvín úr Tempranillo, helstu rauðvínsþrúgu þeirra Spánverja. Einfalt og ódýrt en styrkur þess er hversu vel það skilar einkennum og ferskleika þrúgunnar. Það sem einkennir vínið er ungur, hreinn, tær og ferskur ávöxtur. Sæt berjaangan, kirsuber, bláber en einnig plómur. Mjög mild eik, örlítil vanilla. Vínið er milt, mjúkt og ferskt.
1.799 krónur. Mjög góð kaup.