Salvía er yndisleg kryddjurt sem lagar sig vel að smjöri, hvítlauk og sítrónu. Það er einmitt hráefnið sem að við notum hér í kryddsmjör sem fer undir húðina á kjúklingnum áður en hann er eldaður í ofni.Með kjúklingnum eldum við rótargrænmeti til að nota sem meðlæti.
- 1 heill kjúklingur
- ca 6 stórir hvítlauksgeirar
- 1 væn lúka af ferskum salvíublöðum
- 30 g smjör
- 1 sítróna
- 1 lítill laukur
Rífið börkinn af sítrónunni. Fínsaxið börkin, hvítlauksgeirana og salvíublöðin og blandið vel saman við smjörið.
Þrýstið putta undir húðina á kjúklingnum við læri og bringur þannig að hún losni frá kjötinu og troðið kryddsmjörinu inn undir skinnið við lærin og bringurnar.
Skerið sítrónuna í bita og laukinn og „fyllið“ kjúklinginn. Saltið hann vel og piprið.
Skerið niður gulrætur, lauk og kartöflur og setjið í pott sem má fara inn í ofn. Hellið smá ólífuolíu saman við og blandið saman. Setjið kjúklinginn ofan á.
Setjið inn í 220 gráðu heitan ofn. Lækkið í 200 gráður eftir korter og eldið í a.m.k. 45 mínútur í viðbót. Berið farm með rótargrænmetinu í pottinum.