Bacalao con Tomate er ein af hinum sígildu spænsku saltfisksuppskriftum sem flestar spænskar húsmæður – og húsfeður – elda reglulega.
- 800 g saltfiskur, útvatnaður, helst þykk hnakkastykki
- 1 laukur, saxaður
- 4 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
- 5 dl tómatapassata
- (rauðvínsskvetta ef hún er til)
- 1 dós grænar ólífur
- 1/2 dós grillaðar paprikur
- 3 msk chorizo (eða pancetta)
- ólífuolía
Skerið chorizo eða pancetta í litla bita. Chorizo gefur meira kryddbragð, pancetta ýtir meira undir annað bragð.
Hitið olíu á pönnu eða í þykkum potti. Steikið chorizo í 2-3 mínútur og bætið þá söxuðum lauknum og hvítlauknum út í. Mýkið á miðlungshita í 3-4 mínútur. Hellið þá skvettu af rauðvíni út í, sjóðið niður í 2-3 mínútur og hellið þá tómötunum út á. Látið malla í um 5 mínútur.
Saxið ólífur og grillaðar paprikur. Blandið saman við. Setjið fiskstykkin ofan í.
Setjið pönnu eða pott inn í 200 gráðu heitan ofn og eldið í um 20 mínútur.
Með þessu má bera fram pönnusteikta kartöflubáta og gott salat. Kröftugt spænskt rauðvín er líka fullkomið með, t.d. Rioja Crianza eða Reserva eða ungt Ribera del Duero á borð við Finca Resalso.
