Hallveig bloggar: Jólaborgarar á langþráðum sólardegi

Ég les veðurspána eins og bestu spennusögu þessa dagana, eins og meirihluti þjóðarinnar. Þegar útlit var fyrir sæmilegt veður í kvöld ákvað ég að taka sénsinn og tók út pakka af hreindýrahakki sem elskulegur bróðir minn Þorbjörn skaut handa mér í fyrra. Stefnan var tekin á borgara, enda henta þeir sérlega vel til grills, og grillmeistari heimilisins, ektamaðurinn elskulegi fenginn til verksins. Hann stóð sig að sjálfsögðu frábærlega eins og venjulega og urðu borgararnir guðdómlega safaríkir og fullkomlega steiktir.

Ég ákvað að hafa með þessu gráðaostasósu, enda fátt sem passar betur með Rúdolf og félögum, sultaðan rauðlauk (athugið að það þarf að kæla hann eftir matreiðslu) og klettasalat. Ég er á því að vera ekki að hlaða um of á hreindýrakjöt því það þarf að njóta sín. Það er ekki eins og maður fái þessa guðafæðu á hverjum degi!

Eins vil ég ekki setja of mikið saman við hakkið sjálft og krydda það því bara með salti, pipar og fersku timian. Timianið yfirgnæfir ekki kjötið en gefur bragð sem passar vel með því.

Hreindýrahamborgarar:

  • 500 gr. hreindýrahakk
  • maldon salt (ca 1 tsk)
  • nýmalaður pipar
  • nokkrar greinar af fersku timian

blandið kryddinu saman við kjötið og mótið úr því 4 hamborgara. Smyrjið vel með olíu fyrir grillun því kjötið er mjög fitusnautt.

Gráðaostasósa:

  • hálfur gráðaostur (eða meira ef fólk vill hafa mikið gráðaostabragð)
  • 1 dós sýrður rjómi
  • 2 msk mæjónes
  • nokkrir dropar hlynsýróp

stappið gráðaostinn vel og blandið rjómanum,  mæjónesinu og sýrópinu saman við. Gott er að gera sósuna eins snemma og hægt er svo hún nái að brjóta sig, en hún er líka mjög góð þó hún sé gerð rétt fyrir mat.

Sultaður rauðlaukur:

  • stór rauðlaukur, skorinn í sneiðar
  • 2 msk balsamik edik
  • 1 msk púðursykur
  • 1 tsk rifsberjahlaup

hitið smá olíu í potti og steikið laukhringina við háan hita þar til hann er farinn að mýkjast. Lækkið þá hitann og leyfið lauknum að malla í 10-15 mínútur. Blandið þá edikinu saman við og sjóðið í 4-5 mínútur, bætið svo sykrinum og rifsberjahlaupinu saman við og látið malla í 2-3 mínútur. Kælið áður en þið berið það fram.

Deila.