Kjúklingur í karrý hefur löngum verið vinsæll. Hér er á ferðinni svolítið öðruvísi karrýsósa, full af spennandi framandi kryddum og með ferskum appelsínusafa og grísku jógúrti.
- 1 heill kjúklingur, bútaður niður
- 1 dós grísk jógúrt
- pressaður safi úr 3 appelsínum (eða rúmir 2 dl af góðum safa)
- 1 msk karrý
- 1 msk fennel
- 1 tsk túrmerik
- 1 væn tsk kóríanderfræ
- 2-3 hvítlauksgeirar, pressaðir eða grófsaxaðir
- 1 msk akasíuhunang
- 2 msk ólífuolía
- salt og pipar
Skerið kjúklinginn niður í 6 bita.
Myljið fennel og kóríanderfræ í morteli. Blandið saman við önnur hráefni. Setjið kjúklingabitana í ofnfast fast og hellið marineringunni yfir. Veltið bitana upp úr þannig að hún þekji bitana alveg. Setjið álpappír yfir og leyfið að marinerast í ísskáp í um klukkutíma.
Takið út og eldið í ofni í 45 mínútur við 225 gráðum.
Arómatískt hvítvín fellur vel að þessum rétt. Til dæmis Pierre Sparr Gewurztraminer.
Berið fram með hrísgrjónum og salati.
