Trapiche er eitt af stærstu vínhúsum Argentínu og líkt og flest vínfyrirtæki landsins ræktar það vín sín á hásléttunni í Mendoza við rætur Andes-fjalla.
Mjög dökkt á lit, fjólublátt. Sæt og þykk angan af dökkum berjum og plómum, sólber og bláber, nokkuð kryddað, vanilla og sviðinn viður. Mjög mjúkt og þykkt í munni, áxöxtur og þykk eik algjörlega samofin, tannín rennislétt og mjúk, kaffi og svolítið þurrkaður ávöxtur.
Vín sem hentar með margvíslegum mat, auðvitað nautasteik en mýkt tannína gerir þetta einnig að ágætum kosti með nokkuð krydduðum mat, t.d. indverskum.
2.099 krónur. Mjög góð kaup.