Nederburg er eitt hinum sögufrægu vínhúsum Suður-Afríku og var upphaflega stofnað árið 1791. Nederburg-býlið, sem er sannkallað Chateau, er enn á sínum stað í Paarl skammt frá Höfðaborg og vínin frá Nederburg eru með þeim vinsælli frá Suður-Afríku. Foundation-línan er með þeim ódýrari frá Nederburg, létt og ávaxtarík vín.
Foundation Chardonnay hefur fallegan, svolítið gullin lit. Angan af þroskuðum, suðrænum ávöxtum, melónu, sultuðum lime- og greipávexti og ananas. Fersk í munni með sætum, svolítíð smjörkenndum ávexti og mildum eikartónum. Tilvalið sem fordrykkur eða t.d. með austurlenskum réttum.
1.799 krónur. Mjög góð kaup.