Santa Tresa Cerasuolo di Vittoria Classico 2012

Feudo di Santa Tresa er vínhús á Vittoria-svæðinu á Sikiley sem er mjög framarlega í lífrænni ræktun vína. Cerasuolo di Vittoria er eitt virtasta vínhérað Sikileyjar, það eina sem flokkað er sem DOCG. Þrúgurnar sem notaðar eru í vínið eru annars vegar Nero d’Avola og hins vegar Frappato.

Dökkt, heitt, kryddað, þroskuð kirsuber og trönuber, reykur, einiber, jörð, ávöxturinn í munni bjartur, tannískur, míneralískt. Flott matarvín.

2.495 krónur. Mjög góð kaup.

Deila.