Purple Angel er eitt af toppvínum Montes, í sama ofurflokki og Cabernet-vínið M og Syrah-vínið Folly. þessi árgangur er 92% Carmenere en afgangurinn af blöndunni er Petit Verdot, enn ein Bordeaux-þrúgan.
Carmenere er þrúga sem kemur upprunalega fra Bordeaux. Hún fluttist yfir til Chile á þar síðustu öld líkt og aðrar þekktar franskar þrúgur en gleymdist svo. Lengi vel voru Carmenere-þrúgurnar frá Chile seldar sem Merlot en þegar að menn skyndilega uppgötvuðu að stór hluti af Merlot-ekrunum væri í raun Carmenere fóru menn að horfa á hlutina öðrum augum. Á síðustu árum hefur Carmenere verið að sækja í sig veðrið og er orðin ein athyglisverðara þrúga Chile.
Þetta er mikið vín en jafnframt mjúkt og lostafullt, sætur ávöxtur og sæt eik byrja í nefi og halda áfram út í gegn, dökk, sultuð ber, bláber, mokka, vanilla og framandi krydd, tóbak. Þykkt, feitt og aðlaðandi, mikið, mikið vín.
6.998 krónur. Frábært vín, þolir vel villibráð og önd með sætum sósum og meðlæti.
-
10