Alentejo er syðsta svæðið af helstu víngerðarsvæðum Portúgal, staðsett á milli höfuðborgarinnar Lissabon og Algarve. Alls þekur það um þriðjung af víngerðarsvæði landsins. Rík áhersla er yfirleitt lögð á hinar staðbundnu þrúgur. Í hvítvíninu Duas Castas eru þannig notaðar þrúgurnar Gouveio og Antao Vaz.
Fallega fölgult, nokkuð kröftugur sítrus í nefinu, lime, limebörkur, appelsínubörkur, græn epli. Hefur flottan ferskleika, lifandi og bjart með fína þykkt.
90%
2.998 krónur. Frábær kaup. Með humar í hvítlauk, köldum sjávarréttum.
-
9