Brancott Estate er með elstu vínhúsunum í Marlborough á Nýja-Sjálandi, stofnað þegar árið 1934 sem er ansi hreint virðulegur aldur á þessum slóðum, enda ekki fyrr en fyrir um tuttugu til þrjátíu árum eða svo sem að umheimurinn uppgötvaði hversu mögnuð vín eru framleiddu þarna hinum megin á hnettinum.
Letter Series er ein af bestu vínlínum Brancott og við höfum áður fjallað um Sauvignon Blanc í þeirri seríu. Nú er röðin komin að rauðu þrúgunni sem er jafnáberandi fyrir Nýja-Sjáland og Sauvignon í hvítu.
Dökkrautt á lit, þroskuð, sæt jarðarber, kanilstöng og rjómi, ávöxturinn heldur áfram í munni með kryddi, mjúkur og þægilegur. Flott vín.
2.999 krónur. Frábær kaup.