Baron de Ley Gran Reserva 2010

img_3347Árið 2010 var geggjað í Rioja og við höfum á undanförnum árum fengið að njóta af mörgum góðum Reserva-vínum og jafnvel Gran Reserva frá þessu þessum árgangi. Reservan frá Baron de Ley var með bestu kaupum í sínum flokki á sínum tíma og það er því ekkert slor að fá núna Gran Reserva-vínið frá sama framleiðanda.

Smá byrjandi þroski í lit en enn ung yfirbragð, eikin svífir yfir með kókos og vanillu, undir dökkur berjaávöxtur, tóbakslauf og örltíil mynta í bakgrunni,  massíft og mjög þéttriðið. silkimjúkt.  Enn ungt. Mun batna og batna.

100%

3.798 krónur. Frábær kaup á þessu verði. Vín fyri vel hangið nautakjöt, hreindýr og önd.

  • 10
Deila.