Jónmundur vann Beefeaterkeppnina

Frábær stemmning var á úrslitakvöldi BeefeaterMIXLDN sem haldin var á Hverfisbarnum í lok nóvember.

Tólf frábærir barþjónar voru valdir af Beefeater-teyminu í London að taka þátt í þessu úrslitakvöldi þar sem sigurvegarinn fer ævintýraferð til London á næsta ári, og á möguleika á að búa til sitt eigið gin.

Þessi keppni hefur verið haldin í sex ár og er þetta í fyrsta skipti sem að íslenskum barþjónum gefst kostur á að taka þátt í henni.  Þema keppninnar þetta árið er „borgin þín“ það er kokteilar innblásnir af heimaborg barþjónsins í víðasta skilningi.

Sebastina Hamilton, sem er Global Brand Ambassador hjá Beefeater var yfirdómari keppninnar og krýndi að lokum eftir jafna og spennandi keppni Jónmund Þorsteinsson frá Apótek Restaurant sigurvegara 2017 með drykkinn „The Treasures of Laugardalur“.

Jónmudur fer nú til London í febrúar og etur þar kappi við aðra heimsklassa barþjóna frá 35 löndum.

Uppskriftina að sigurdrykk Jónmundar má sjá með því að smella hér. 

Myndband frá keppninni má svo sjá hér. 

Deila.