JC Boisset Les Ursulines Bourgogne Pinot Noir 2016

Jean-Claude Boisset hefur byggt upp mikið vínveldi í Búrgund á síðustu áratugum með kaupum á hinum ýmsu vínhúsum. Hann var einungis 18 ára þegar að hann stofnaði sitt eigið négociant-fyrirtæki árið 1961 og árið 1985 varð hann fyrsti nécoiantinn sem að skráði sig í frönsku kauphöllina. Vínin sem hann setur á markað undir eigin nafni hafa vaxið mikið á síðust árum, ekki síst eftir að víngerðarmaðurinn Gregory Patriat tók við línunni árið 2002.

Pinot Noir-þrúgurnar sem notaðar eru í vínið Les Ursulines koma af Cote de Nuits-svæðinu, norður af borginni Beaune í hjarta Búrgunds. Það hefur ljósrauðan lit, í nefinu ríkjandi bjartur rauður ávöxtur, rifsber og hindber, það er ferskt með þægilegri sýru og milt.

70%

2.899 krónur. Mjög góð kaup. Gott að bera fram örlítið kælt, 16-18 gráður. Fínt með hvítu kjöti.

  • 7
Deila.