Ecologica Shiraz-Malbec Reserve 2016

Ecologica Shiraz-Malbec er lífrænt ræktað rauðvín frá héraðinu La Rioja í Argentínu, selt í þriggja lítra boxi eða belju eins og slík box eru kölluð. Dökkrautt, með angan af þroskuðum dökkum ávöxtum og berjum, smá plómur, brómber, svört vínber. Ávöxturinn með mildri sætu, kryddaður, vottur af vanillu. Hið frambærilegasta beljuvín.

70%

6.699 krónur eða um 1.675 fimm krónur sé miðað við hefðbundna 75 cl flösku. Mjög góð kaup, virkilega gott kassavín.

  • 7
Deila.