Chateau Tour Pibran 2012

Þorpið Pauillac á Médoc-skaganum norður af borginni Bordeaux er ekki stórt, sveitaþorp jafnvel á íslenskan ´mælikvarða. Þar er engu að síður að finna fjölmörg af allra bestu vínhúsum veraldar og hvergi í heiminum eru aðstæður jafnfullkomnar til ræktunar á Cabernet Sauvignon og á þessum litla blett í suðvesturhluta Frakklands.

Flest Chateau framleiða að minnsta kosti tvö vín. Stóra aðalvínið og hins vegar vín númer tvö sem er gert úr þrúgum af sömu ekru en yfirleitt af yngri vínvið.  Þessi vín eru gjarnan bestu kaupin í Bordeaux-vínum, áþekk stóru vínunum í stíl en mun ódýrari og að sama skapi vín sem þarf ekki að bíða eins lengi eftir að verði tilbúin.

Tour-Pibran er heitið á víni númer tvö frá vínhúsinu Chateau Pibran er vissulega ekki eitt af Grand Cru Classé-vínunum. Ekrur vínhússins eru engu að síður á besta stað og umluktar ekrum nokkurra “stóru” vínhúsanna, s.s. Mouton-Rothschild, Pontet-Canet og Lynch Bages.

Hörku Bordeaux-vín. Dökkfjólublátt, djúpur litur. Angan af þroskuðum sólberjum, krækiberjum, reykur úr eikinni og tóbakslauf, kröftugt með staðföstum tannínum, ferskt.

90%

3.999 krónur. Frábær kaup - frábært verð fyrir Bordeaux af þessum gæðum.

  • 9
Deila.