Saint Clair Marlborough Premium Chardonnay 2014

Líkt og önnur vín frá Saint Clair byggist þetta hvítvín á þrúgum ræktuðum í Marlborough, línan nefnist Marlborough Premium sem er vörulínan fyrir ofan Vicar’s Choice, sem margir þekkja, í gæðum. Á lit er vínið ljósgult út í gult, í nefi smjör og sultuð hvít ber, suðrænir ávextir, það springur út í munni, vanilla og þurr, míneralískur, suðrænn ávöxtur. Byrjað að sýna þroska í nefi.

80%

2.699 krónur. Frábær kaup. Með hvítum fiski, jafnvel með rjóma- eða ostasósu. Sérpöntun.

  • 8
Deila.