
Beaujolais-vínin eru svo miklu, miklu meira heldur en Noveau-vínin sem lengi vel voru mótandi í ímynd héraðsins. Það er ekki að ástæðulausu að þetta hafa löngum verið einhver vinsælustu bistro-vín Parísarbúa, góð og gleðirík matarvín. Þetta Villages-vín frá Mommessin er fínasta þorpsvín, minnir í strúktúr jafnvel á ungt Búrgundarvín. Fagurrautt með fínlegum rauðum berjaávexti í nefi, rifsber, kirsuber og hindber, þétt í sér með ferskri sýru og fínu jafnvægi og lengd.
80%
3.199 krónur. Frábær kaup. Með kalkún.
-
8