Museum Numerus Clausus 2012

Numerus Clausus er toppvínið frá Finca Museum í vínhéraðinu Cigales, gert úr þrúgunni Tinta del Pais sem er eitt af samheitum Tempranillo.

Cigales er tiltölulega óþekkt víngerðarsvæði á hásléttunni norð-vestur af Madrid, eiginlega rétt norður af öllu þekktara víngerðarsvæði, Ribera del Duero. Það bar lengi lítið á Cigales, þarna voru fyrst og fremst mjög litlir framleiðendur sem seldu vín sín í nágrenninu. Þetta breyttist fyrir nokkrum árum þegar vínhúsið Baron de Ley í Rioja komst að þeirri niðurstöðu að þarna væru kjöraðstæður til fjárfestinga utan Rioja. Það sem ekki síst réði þessu vali Baron de Ley var aldur vínviðsins á ekrunum.

Runnarnir sem gefa af sér þrúgurnar í Numerus Clausus eru 80 ára gamlir og hver þeirra gefur einungis af sér um fjóra þrúguklasa í hverri uppskeru. Þetta er einstakt vín, liturinn nær svartur og ógegnsær, nefið er massísvt, þykkur svartur ávöxtur, tóbakslauf , leður og kaffi, eikin gegnsýrir allt. Í munni fersk þykkur, kryddaður ávaxtamassi, þurrt, svalt, kryddað og míneralískt. Sofandi risi sem þarf að vekja með umhellingu, átta ára en má vel geyma í 10 ár eða lengur.

100%

6.998 krónur. Stórkostlegt vín, Með villibráð eða nauti. Flaskan kemur í trékassa.

  • 10
Deila.